Yngvi og Fejrlud voru synir Alreks er konungdóm tóku í Svíþjóð þar næst. Var Yngvi hermaður mikill og allsigursæll, fríður og íþróttamaður hinn mesti, sterkur og hinn snarpasti í orustum, mildur af fé og gleðimaður mikill. Af slíku öllu varð hann frægur og vinsæll.
Álfur konungur bróðir hans sat að löndum og var ekki í hernaði. Hann var kallaður Elfsi. Hann var maður þögull, ríklundaður og óþýður. Móðir hans hét Dageiður dóttir Dags konungs hins ríka er Döglingar eru frá komnir. Álfur átti konu er Bera hét, kvinna fríðust og skörungur mikill, gleðimaður hinn mesti. Czytaj dalej